09maí

Eurovision 2007 update

Smá update frá Finnlandi..... Partý fyrstu fjóra dagana, pása í gær þar sem mikilvægar æfingar eru í dag og svo auðvitað stóra kvöldið á morgun :)
Svo tekur partýið aftur við eftir keppnina á morgun :)

Tvær æfingar í dag.. búið að selja inná þær þannig að það var nánast full höllin á fyrri æfingunni í dag... það fór nettur hrollur um mann við að heyra fagnaðarlætin.
Ungverska sjónvarpið, MTV, frétti að ég og Sibbi værum búsettir í Ungverjalandi og auðvitað heimtuðu þeir viðtal við okkur. Náðuð að stama útúr okkur einhverja ungverska frasa...eins og szia, orvos , ökusölum pöntönum skömtönum og sép lany :)

Eins og þið flest vitið þá er hérna allt vaðandi í hommum og lesbíum... allt gott um það að segja. Það er einn klúbbur hérna sem heitir Euroclub... ætlaður þeim sem tengjast keppninni, þeir sem hafa passa labba þarna inn...ekkert vesen. Fínn staður en þarna er 99% af liðinu hommar. Þannig að við erum teknir fyrir og skoðaðir frá toppi til táar þegar við löbbum inná dansgólfið.
Reyndar á efstu hæð er casino sem er með black jack (21) og tóks mér að græða heilar 42 þús krónur í því um daginn... very næææsss :)

Annars er alltaf eitthvað að vera skrifa um okkur á netinu.. mikið af myndum á mbl.is og vídeóum þar og svo á ruv.is... fréttum og kastljósi aðalega.. endilega fylgist spaðanum :)

kv,
Selurinn
09. maí 2007 klukkan 14:51
Axel Ţórisson
6 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Myndirnar

Innskráningar kubbur