18janúar

Kominn í frí :)

VVVVVEEEEEEEIIIIIIIIIIIII...Loksins kominn í frí.. kláraði seinasta prófið í morgun, tók efnafræðina og rústað henni. Fyrsta önnin í læknisfræði staðreynd og aðeins 11 eftir  :)
Förum til Búdapest á morgun, ég og Svenni, gistum þar eina nótt og svo flug heim á föstudagsmorgunn. Verð kominn á skerið um 15 leitið þannig að aðdáendur mínir geta tekið á móti mér í Leifstöð. Veit að það verða rútuferðir frá Select Suðurfelli, gamlir beikonpulsufélagar úr Breiðholtinu standa fyrir þessu.

Talandi um frægð þá er hún á næsta leiti hjá mér.. er að fara "taka þátt" í eurovision heima á ísl. í fríinu mínu. Þannig er að Svenni er með 2 lög sem keppa í ár, fyrra lagið syngur Hreimur núna á laugardaginn og það seinna syngur rokkgoðið Eiríkur Hauksson á laugardaginn þar næsta. Bað Svenni mig og Sibba meðleigjanda að vera í hljómsveitinni sem verður á sviðinu í þessum lögum, ég á gítar, Sibbi á bassa og Svenni á píanó. Auk okkar verður Viggi úr Írafár á sólógítar og Benni úr einhverri hljómsveit sér um að berja húðir. Þannig að allir að fylgjast með RÚV næsta og þarnæsta laugardag og kjósa lögin sem ég er að spila :)

Get ekki annars beðið eftir að koma heim, oggu þreyttur á þessari lærdómstörn núna og svo var nýja fína hjólinu mínu stolið fyrir utan skólann um daginn... helvítis sígaunar :)
Þannig að planið hjá mér er að sinna kellu, klappa snældu, troða í mig mikið af íslenskum mat, spila í eurovision, spila með Brokey,blindfullur allar helgar og vinna eitthvað þarna á milli :)

Sjúgumst á föstudaginn, verð með íslenska gemsa númerið mitt þá...6617484

kv, Selurinn
18. janúar 2007 klukkan 06:23
Axel Þórisson
1 athugasemd
16janúar

NÝTT BLOGG!!!!!

VÁÁÁÁÁ HVAÐ ÉG ER DUGLEGUR AÐ BLOGGA!!!!!!!

KV.
Selurinn
16. janúar 2007 klukkan 02:36
Axel Þórisson
1 athugasemd
24desember

Gleðileg Jól ágætu íslendingar!!

Ekki mikið um jólaskap hjá Bartha ættinni. Tíminn hefur verið svo ótrúlega fljótur að líða hérna að við strákarnir (Bartha ættin) erum enn fastir í okt-nóv. Mikið hefur verið skreytt í miðbæ Debrecen en aftur á móti skreyta íbúarnir hérna lítið sem ekkert. Vantar alveg einhverja snargeðveika sem lýsa upp allt hverfið með jólaljósum í trjáum, öllum gluggum og heilu sviðsmyndirnar af jesú og jólasveinunum. Reyndar erum við ekkert skárri, drulluðum okkur í gær, 22. des, í TESCO og versluðum jólaskraut. Keyptum 50 cm jólatré sem passar í stofuhilluna hjá okkur,einhverja jólaborða til að hengja á gardínustangirnar og eitt jólaljós í gluggan. Verð bara að segja að við þetta kom smá jólafílingur í mann.

Reyndar borðað mikið af mandarínum núna undanfarið, gott að narta í þær meðan maður er að lesa. Minnir mig reyndar bara á mandarínusöguna okkar Kalla. En þegar við vorum að leigja saman í Hörgshlíð '99-'00 þá ákváðum við að kaupa okkur svona risastórann mandarínukassa saman, það var eitthvað svo jólalegt við það. Held að við höfum borðað kannski eina saman svo fór kassinn bara inní skáp. Svo fórum við náttúrulega heim til Stykkishólms yfir jólin en létum Valtýr hafa lykla að íbúðinni svo að hann gæti vökvað blómin okkar. Eitthvað þurfti Jói, bróðir Kalla að kíkja í íbúðina
okkar á meðan við vorum í burtu og kvartaði hann undan skelfilegri lykt í íbúðinni. Komumst að því að þetta voru mandarínurnar sem ollu þessari lykt þegar við sáum þær hlaupandi um alla íbúð þegar við komum og var þessi lykt föst þarna það sem eftir var. Þurfti víst að rústa íbúðinni, mála hana og setja parket á gólf eftir að við vorum þarna, ekki það að teppið hafi verið eitthvað illa farið eftir okkur, bara nokkrir rauðvínsblettir og svona 3 fermetrar af matarslettum :)
Reyndar það skemmtilegasta við þessa ótrúlega áhugaverðu og skemmtilegu sögu mína var þegar við komum aftur til Reykjavík að halda uppá aldamótin,þá var Valtýr bara búinn að koma sér fyrir í íbúðinni á meðan við vorum í burtu, partý í gangi þegar ég mæti á nýju ári, tónlist í botni og fullt af fólki hjá okkur :)

Á morgun, aðfangadag stefnum við á að vakna um 8 leitið í fyrramálið og læra til svona 15. Þá tekur eldamennska við hjá mér. Ætla að matreiða eitt stykki hamborgarahrygg sem Eva kom með til mín. Förum svo til Arnars og Ingibjargar ásamt Tómasi, Báru og svo henni Önnu hans Svenna. Eyðum þar kvöldinu í að éta og hafa það gott :)

Annars vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og njótið hátíðanna :)

kv,
Selurinn
24. desember 2006 klukkan 04:48
Axel Þórisson
5 athugasemdir
16desember

Vill fá Sony Ericson K800i myndavéla/mp3 spilara - síma í jólagjöf :)

Skólamót í körfu var haldið um daginn og auðvitað safnaði ég saman í eitt stykki íslenskt lið. Árangurinn var sæmilegur, 3. sæti og bættist ein bronsmedalía í safnið hjá mér. Ég get lofað ykkur því að það voru fleiri en 3 lið í keppninni Hlæjandi
Það var einn maður sem hélt liðinu uppi og það var hann Sveinn Rúnar (Svenster Bling) en með ótrúlegri boltatækni, librum skotstíl, skapstygð og miklum skilning á leiknum, tókst honum að koma okkur í 3. sætið. 

Háloftabardagar


Stoltir meðlimir bronsliðsins

Hérna eru nokkur videó af leiknum, eitt montvídeó af mér og svo tvö af Svenster, gular stuttbuxur (aðalega fyrir hann sjálfann) Hlæjandi

http://www.youtube.com/watch?v=eTr84nmeeWg
http://www.youtube.com/watch?v=KEgpRYeyeuA
http://www.youtube.com/watch?v=Em3pbFE6GxY


Annars er allt gott að frétta héðan fyrir utan að þoku í mánuð eða eitthvað álíka og skítakulda. Orðið aðeins jólalegra hérna þar sem allt er orðið hélað úti og eins og tréin hafi verið spreyjuð  hvít.
Í gær var ég í Biophys-lab prófi, verklegt biophys. Fyrsta munnlega prófið af mörgun og get ég sagt ykkur að stressið var eftir því. Var gjörsamlega að hrauna í mig úr stressi en að algjöru óþörfu þar sem allt gekk vel. Fékk blóðþrýstingstilraunina, reiknaði eitthvað og mældi svo blóðþrýstinginn á kennaranum. Fékk 2 af 3 í einkunn, dró mig niður um 1 því að ég gleymdi einum skitnum mínus Fýldur en eins og hann sagði þá geri ég ekki þessi mistök aftur.

Hérna fyrir neðan er linkur á kynningarmyndband sem gert var fyrir skólann hérna í Debrecen. Í endanum á því erum við ísl að spila fótbolta og sést ég þar í 1 míkrósekúndu.
http://www.youtube.com/watch?v=OldcYt37ae8


kv,
Selurinn

16. desember 2006 klukkan 20:52
Axel Þórisson
4 athugasemdir
04desember

Búdapest

Jæja, loksins kom Eva til Axels síns. Var lent um ellefu leitið að kveldi 24. nóvember í Búdapest. Sjálfur var ég mættur til Búdapest um 15 leitið fyrr um daginn. Var samfó Tómasi og Báru kellu hans. Rölti ég með þeim Veci Utca sem er verslunargatan í Búdapest. Hún er ekki meira en skítsæmileg, toppar ekki Laugaveginn heima. Kíktum svo á hevy fínan veitingastað sem heitir Mocca. Ákvað ég að fara djörfu leiðina í matarpöntun og pantaði sverðfisk sem bragðaðist hinn besti og súkkulaði "sjuflei" eða eitthvað svoleiðis Brosandi  . Allt ótrúlega djúsí og gott. Svo kom að því að ná í kellinguna uppá flugvöll, mætti aðeins of seint, en gríðarlegir fagnaðarfundir þrátt fyrir það Brosandi. 

Vöknuðum eldsnemma næsta morgun til að þræða allar búðirnar í Búdapest, fórum á verslunargötuna og svo í Mammuth verslunarmiðstöðina sem er Búda megin. Þrátt fyrir að vera drepast í fótunum eftir erfiða göngu í allar búðirnar, þá drösluðum við okkur út til að éta um 21 leitið. Fórum á næsta veitingarstað sem við sáum og þvílíkan viðbjóðs mat hef ég ekki smakkað hérna í Ungverjalandi, hann toppar matinn í Debrecen í viðbjóðslegheitum og þá er sko mikið sagt. Það er tvennt sem ég sé eftir í þessari ferð en það er að fara með Evu á þennan skítavibbastað að borða og svo að hafa ekki keypt mér þessa einstaklega fallegu og töff loðhúfu Brosandi

Endalaust svalur verð ég að segja 
En Eva er ekki sammála mér með þessa aðdáun mína á þessari húfu, þannig að ekkert varð úr kaupunum. En ég fékk nafnspjaldið hjá “húfuhönnuðinum” og ætla að kíkja á hann næst þegar ég fer til Búdapest og láta hann slátra nokkrum minkum fyrir mig í eina húfu.  

Sunnudaginn notuðum við í að skoða aðeins í Búdapest. Gengum auðvitað yfir The Chain Bridge, ein af fyrstu brúm sem tengdu Búda við Pest. Byggð 1849 en var eyðilögð í seinni heimstyrjöldinni, mjög fróðlegt hjá mér hérna Brosandi
. Fórum upp að kastalanum, The Castle District. Þar er fínt útsýni yfir Pest, sést vel í þinghúsið þeirra þaðan.
Uppi hjá The Castle District, Parlamentið sést í bak 
Svo var haldið til Debrecen kl 17 með lest sama dag. Mættum þar, kynnti Evu fyrir meðleigjendum mínum og ruku síðan út að éta á flottum steikarstað hérna. Þar er steikin straujuð fyrir framan mann, mjög töff og ótrúlega gott.Svo var Eva bara farin kl 10:30 næsta morgun til Búdapest, þaðan til London, gist þar eina nótt og svo til Íslands.


Erum búin að ákv að hún stoppi aðeins lengur næst, helvíti fljótt að líða en mjög gaman að fá Slebbu sína hingað Brosandi

Setti inn fullt af myndum úr ferðinni okkar, endilega kíkið á þetta hjá mér.

 

Kærar kveðjur heim

Selurinn   
04. desember 2006 klukkan 20:55
Axel Þórisson
8 athugasemdir
04desember

Hárið

Ykkur til fróðleiks þá er ég að leigja með einstaklega hárprúðum manni....eða réttar sagt var að leigja með einstaklega hárprúðum manni.

Þannig er mál með vexti að við félagarnir, ég, Sibbi og Maggi, kíktum í afmæli hjá Rólant og Bjarti um daginn. Fórum okkur hægt í drykkjunni þar sem við þurftum að mæta kl 8 daginn eftir í skólann....Á LAUGARDEGI!!!!!!!
Kemur Sibbi til mín, strýkur faxið frá andlitinu og segir mér að koma heim og raka á sér hausinn, hann væri kominn með nóg af hreiðrinu á hausnum á sér. Erum mættir heim kl 3 og byrja ég þá að raka á honum hausnum, með punghára/bartskera snyrtinum mínum Hlæjandi  Þurfti fyrst að vinna á þessu með vírklippum og skærum þar til að hárið var orðið nógu þunnt til að raka af.
Held að við séum báðir sammála með það að árangurinn hafa bara verið nokkuð góður.



Selurinn
04. desember 2006 klukkan 20:00
Axel Þórisson
2 athugasemdir
21nóvember

Ungverskt Gull!!!


Ákvað að prófa bloggar.is. Á víst að vera mun auðveldara að setja myndir inn á sjálft bloggið en blogg.central hefur gjörsamlega verið að gera mig geðveikan í hversu erfitt er að setja myndir inná bloggið.
 

Eins og fyrirsögnin gefur til kynna á ég ungverskt gull, réttara sagt ungverska gull medalíu. Dote, skólaliðið, var að keppa á þriðjudaginn seinasta og fékk kallinn að spila með. Spiluðum við 2 leiki, sá fyrri vannst auðveldlega en seinasti leikurinn var í járnum allan tímann. Það var ekki fyrr en á seinustu sekúndunum sem Eyal, leikmaður Dote, neglir niður einum dræbúnkt í andlitið á einum gaurnum og vinnum við leikinn með 3 stigum. Það var svaka stuð á leikjunum, fjöldi af áhorfendum og svo erum við með 20 stelpur sem klappstýrur og létu þær vel heyra í sér. Allt mjög skemmtilegt. Þrátt fyrir misheppnaðar troðslutilraunir í upphitun (það kemur), stóð ég mig bara sæmilega, miðað við að hafa bara mætt á 2 æfingar og ekkert spilað síðan með Brokey seinasta vor. Var með 8-10 stig í leik, reif niður 10-12 fráköst og spilaði geðveika vörn
J
Þjálfarinn var eitthvað að bjóða mér að spila með 2 deilda liði hérna, veit ekki hvort að það sé betra eða verra, ætla prófa og sjá svo til.

Fyrsta ungverska gullið
 
Svo er hún Eva Slefa að fara mæta hingað til Selanns. Það verður gaman þar sem hendurnar á mér eru farnar í mótmælaaðgerðir og hóta uppsögnum J Hitti hana í Búdapest á föstudagskvöld, næ þá í hana á flugvöllinn og förum svo á svaka fínt hótel sem við pöntuðum. 

Svaka fína hótel herbergið okkar

Verðum í Búda til sunnudags, kíkjum þá til Debrecen og svo fer Eva á mánudaginn aftur til Íslands.
Sjálfur þarf ég að fara í 2 próf á mánudaginn, Medical Psychology og First Aid, sálfræði og skyndihjálp. Á nú ekki að vera mikið mál.   

Kærar kveðjur heim
Selurinn
21. nóvember 2006 klukkan 19:11
Axel Þórisson
8 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Myndirnar

Innskráningar kubbur