Vinir í heimsókn!!!!!!!!!!
Jæja..kominn tíma á smá update:
Fannar, aka Fannsi, Fannsonite, Farenheit, Faxel, kom loksins í heimsókn til eina vinar síns hingað til Debrecen. Var hann í 11 daga, enda nýbúinn að hætta á Dominos og fékk hann víst góðan bónus fyrir að það :) Held að það sé ekki hægt að ljúga að neinum sem þekkja okkur að við vorum eins og englar..Get lofað skemmtilegum sögum frá þessari heimsókn hans. Ætla ég að geyma það svo að ég hafi eitthvað að blogga um næst.. lofa góðri sögu frá ævintýrum Fannsa í Debrecen :)




Svo stuttu eftir það kom Valgeir, aka Valli 1 eða 2.. Vallarnir eru enn að rífast um þetta :) Hann stoppaði í 5 daga, sem er varla mönnum bjóðandi, frekar stutt enda ætlar hann að gera þetta að árlegum viðburði :) Vorum eina nótt í Búdapest, auðvitað fórum við út að borða um leið og hann kom og duttum í það sem endaði bara í þrælskemmtilegu kvöldi. Daginn eftir höfðum við bara 3 tíma til að versla og skoða.. þurftum að ná lestinni til Debó þar sem ég þurfti að mæta í tíma seinna um daginn. Svo um kvöldið var haldið partý til heiðurs Valgeir.. troðfylltum við húsið af fólki..meira að segja útlendingar létu sjá sig en voru fljótir að flýja þegar Nína var sett í botn og allir fóru að syngja :) Ég reyndi að spila á gítar en gat það ekki vegna ölvunar, stóð við mitt :) Fórum við líka út á laugardagskvöldið þar sem ég lét Valgeir taka eitthvað mesta viðbjóðsskot sem finnst.. man nú ekki hvað það heitir en í stuttu máli þá er vökvinn settur í glas, kveikt í, leggjum lófann yfir og kæfum eldinn..sjúgum með nefinu "víngufuna", drekkum vökvan og hellum restinni á öfugt staupglas og tökum restina í nefið :)... VIÐBJÓÐUR... allir sem koma í heimsókn til mín þurfa að gera þetta :) Fannar skuldar reyndar svona. Frí var í skólanum hjá mér á mánudeginum og þriðjudegi þannig að við leyfðum okkur að kíkja aðeins út á sunnudeginum líka.. bara rólegt, pool, smá bjór og bíó. Vonandi að það verði ekki langt í næstu heimsókn enda skemmtum við okkur alveg konunglega :)





Annars er bara allt skítsæmilegt að frétta, venjulegur dagur fer í að læra, ræktina, körfuboltaæfingu og eitthvað annað chill :)
Bið fjölskyldu mína afsökunar á þessu fylleríis bloggi mínu.. en svona er þetta bara þegar vinir koma í heimsókn :)
Skrifa um ferð Fannars betur næst.. mikið frá að segja þar :)
Bestu kveðjur heim
Selurinn
This is BARTHA!!!
Ja svona hljomadi Gerald Butler rett adur en hann stutadi persunum, var reyndar staddur i Spörtu.Tessa setningu öskrudum vid Sibbi, halfnaktir uppa husthaki a Bartha Boldizar, med gitar og bjorflösku i hönd, rett adur en vid fluttum thadan.
Ja, erum semsagt komnir i nyju ibudina okkar.. og likar alveg otrulega vel.
Var ad koma ur profi.. gengi svona saemilegt.. kemur i ljos, fae ad vita nidurstodur seinna i dag.
Annars er eg a heimleid a morgun, verd lentur 16:30, aetli ad tad verdi ekki slappad af a morgun en their sem vilja hitta mig a laugardaginn er beint a oliver, vegamot, hresso eda nonnabita milli kl: 01-08
Verd med 6617484 og svo vinnusiman 8581051
bestu kvedjur
Selurinn
Geđveikin á ţetta
Ég er löngu kominn aftur til Ungverjalands þar sem euró er löngu búið og því ætti ég að vera löngu búinn að blogga eitthvað en djöfull er maður latur við þetta.En allavegana, back to school. Missti mánuð úr skólanum vegna euró og er núna að borga fyrir það.. Verð hérna út prófatímabilið að dudda mér í að klára eitthvað af prófunum...já og svo örugglega þarf ég að fara aftur út seint í ágúst til að taka próf. Bara stuð. Reyndar þarf ég að hanga inni á meðan úti eru þessar blessuðu 30 gráður. Stelst kannski aðeins á svalirnar til að fá smá sól á kroppaling :)
Ég og Sibbi erum búnir að finna nýja íbúð. Hún er á trammalínunn þannig að við sleppum við að labba í skólann sem tekur okkur 20 mín þar sem við erum núna, 3 mín í skólann með trammanum.
Spörum örugglega líka alveg haug af peningum sem við erum að eyða í taxa. Þetta er orðið það slæmt að
2 leigubílstjórar heilsuðu mér um daginn þegar þeir voru að troða í sig
viðbjóðslegum ungverskum hamborgara
og ég labbaði framhjá. Setjumst inní bíl og þeir segja heimilsfangið okkar
ÁÐUR en við náum að koma því út úr okkur :)
Fínt að losna héðan þar sem við erum. Nágrannarnir eru alltaf að kvarta. Við erum að draga stólanna eftir gólfinu, stöppum of fast þegar við erum að labba upp tröppurnar og ég veit ekki hvað og hvað. Um daginn, þegar við komum heim eftir örlítið djamm :) þá, eins og alltaf næ ég í gítarinn og við förum eitthvað að leika okkur og það voru liðnar svona 2 mínútur þegar það var dinglað hjá okkur, kl var 5-6, sibbi fer til dyra og kellinginn byrjar að öskra eitthvað á hann, sibbi dæsir og þrykkir hurðinni á andlitið á henni.. helvíti gott hjá stráknum. Meira að segja landlordinn okkar, sem leigir okkur íbúðina, hatar fólkið hérna :)
Fáum nýja slottið núna um mánaðarmótin júní-júlí.
Við í skólaliðinu í basket unnum "skóladeildina" um daginn og fáum víst í verðlaun að fara keppa á einhverju skólamóti sem verður haldið í Grikklandi eða Ástralíu næsta september eða október. Sjáum til hvað maður gerir. Neita því ekki að það væri gaman að skella sér í smá ferðlag og skólinn að blæða :) En miðað við fyrri reynslu ætla ég að hugsa málið.
Sá þetta videó hjá félaga mínum hérna.. Ungversk hljómsveit að mótmæla stríði. Þeir eru geeeeðveikt töff, sérstaklega frontarinn.. vill vera svona svalur eins og hann :)
http://www.youtube.com/watch?v=--Vaz9jW054
Annars er það bara lærdómur frá helvíti núna.. Þarf að taka geðveikina á þetta :)
Setti inn myndir frá euró sem ég tók á símann minn.
Bestu kveðjur heim
Selurinn
Eurovision 2007 update
Smá update frá Finnlandi..... Partý fyrstu fjóra dagana, pása í gær þar sem mikilvægar æfingar eru í dag og svo auðvitað stóra kvöldið á morgun :)Svo tekur partýið aftur við eftir keppnina á morgun :)
Tvær æfingar í dag.. búið að selja inná þær þannig að það var nánast full höllin á fyrri æfingunni í dag... það fór nettur hrollur um mann við að heyra fagnaðarlætin.
Ungverska sjónvarpið, MTV, frétti að ég og Sibbi værum búsettir í Ungverjalandi og auðvitað heimtuðu þeir viðtal við okkur. Náðuð að stama útúr okkur einhverja ungverska frasa...eins og szia, orvos , ökusölum pöntönum skömtönum og sép lany :)
Eins og þið flest vitið þá er hérna allt vaðandi í hommum og lesbíum... allt gott um það að segja. Það er einn klúbbur hérna sem heitir Euroclub... ætlaður þeim sem tengjast keppninni, þeir sem hafa passa labba þarna inn...ekkert vesen. Fínn staður en þarna er 99% af liðinu hommar. Þannig að við erum teknir fyrir og skoðaðir frá toppi til táar þegar við löbbum inná dansgólfið.
Reyndar á efstu hæð er casino sem er með black jack (21) og tóks mér að græða heilar 42 þús krónur í því um daginn... very næææsss :)
Annars er alltaf eitthvað að vera skrifa um okkur á netinu.. mikið af myndum á mbl.is og vídeóum þar og svo á ruv.is... fréttum og kastljósi aðalega.. endilega fylgist spaðanum :)
kv,
Selurinn
Heimferđ, Trođ, Meiđsl!!
Sælar....búið er að panta beint flug frá Búdapest fyrir okkur Sibba heim til Íslands 1. Maí. Komnir heim um 18 leitið en þurfum að bruna beint á æfingu fyrir júró....komumst ekki á æfingu núna seinustu helgi og voru víst ekki allir sáttir með það en vonandi verða allir orðnir sáttir þegar við komum aftur.Eitthvað er verið að tala um að skella okkur í leður og læti..spurn hvernig það mun líta út á mér :)
Svo fljúgum við út til Helsinki 4. Maí í stuðið.
Keppti á einhverju háskólamóti hérna í Debrecen í körfu. Unnum það mót bara nokkuð auðveldlega. Spiluðum 3 leiki, glataður í fyrsta, brjálaðslega góður í hinur tveimur :) Tróð í upphitun og læti, en er samt ekki orðinn nógu góður í öklanum mínum eftir að ég asnaðist í þá hommalegu íþrótt, skvass. Var að spila við sibba og svenna og í einum af þessum leikjum missteig ég og svona heldur ekki neitt líitið..þetta var fyrir 6-7 vikum síðan og ég er enn skemmtilega bólginn. Einhverjir voru nú að segja mér að kíkja til læknis..sjáum til með það.
Löng helgi framundan þar sem það er frí á mánudaginn og þriðjudaginn, en þá er ég að koma heim.
Þannig að það er spurning um að nýta þessa helgi og keyra eitthvað. Uppi voru hugmyndir að keyra til Slóvakíu, en vegna dræmrar þátttöku þá verður örugglega ekkert úr þvi að þessu sinni. Ég og Sibbi erum kannski að hugsa um að kíkja til Rúmeníu í staðinn, kíkja á kastala Drakúla og eitthvað.. ef ekkert verður úr því...já ætli við dettum bara ekki í það þá.
Annars finnst mér ég nota þessa blessuðu broskalla alltof mikið þannig að ég ætla að reyna að takmarka notkun mína á þeim í smá tíma :) Bara þrír í þessu bloggi.
kv,
Selurinn
Euroblogg
Held að það sé löngu tímabært á blogg frá mér... mikið gerst seinustu 3 mánuði hjá mér.. Já þið kannski grunið hvað ég er að tala um... EUROVISION :)
Mikið hefur gerst, en ætla nú bara að segja ykkur frá því helsta..held að ég sé búinn að segja ykkur allt það merkilegast :) tala nú ekki um mig og sibba á djamminu..erum duglegir að segja frá okkur... do you know eurovision??... we are eurovisionstars :)
Allavegana þá flaug ég heim með Svenna þegar ég var búinn með prófin í jan...lentum klakanum um 15 leitið eftir erfiða ferð fyrir mig. Svenni var með rotinn endajaxl og fýlan eftir því... og ég þurfti að sitja við hliðina á honum alla leiðina :)
Þurftum allir að vera mættir niðurí loftkastala kl:16 til að æfa með Hreim. Þar voru engin hljóðfæri þannig að kústar voru notaðir sem gítar og bassi... mjög töff!!!
Svo kom að fyrsta kvöldinu af þremur.. við að "spila" þar með Hreim. Smá stress en ekkert sem 2 bjórar redduðu ekki :) Fannst bara Hreimur standa sig ótrúlega vel og botnaði ekkert í þessu afhverju við komumst ekki áfram. Horfði svo á upptökuna daginn eftir og sá þá að hann var ekki alveg hitta á réttu tónana greyið...
Eftir það var haldið á fyllerí.. ég bauð sibba og öllum mínum bestu vinum heim til tengdó og það kvöld endaði illa fyrir mig. Um miðnætti þá var ég herra fulli gaurinn, hella niður og brjóta glös og eitthvað svoleiðis :) var þannig allt kvöldið, náði að drösla mér niður í bæ þar sem ég kynnti sibba fyrir vinunum mínu örugglega 30 sinnum þegar við vorum á Óliver. Mjög skemmtilegt :)
Annað kvöldið var aðeins skemmtilegra... þar vorum við að spila með Eika Hauks. Náðum aðeins meira að æfa fyrir það atriði..með hljóðfæri. Og auðvitað komst það lag áfram eins og alþjóð veit..neita því ekki að maður var nú hálfsmeikur við að fara vera á sviðinu með þessu reynslubolta... en Eiki er einhver sá ljúfasti, engir stælar eða neitt.. kom með okkur í pool, drakk með okkur og svo bara fórum við allir í 6some ......einmitt!!!
Frí hjá okkur þriðja kvöldið.
Úrslitakvöldið:
Rústuðum þessu gjörsamleg, vorum með 65-70% atkvæða :)
Haldið var á Nasa við austurvöll í partíðið hans Páls Óskars þar sem við áttum að flytja lagið fyrir troðfullu húsi:) vorum undir sviðinu nánast allan tímann en þar var stór kælir fullur af bjór sem við náttúrulega þömbuðum enda orðnar rokkstjörnur á íslandi. Hengum þar með þotuliðinu.. Friðrik Ómar og svoleiðis lið...úúújéee :)
En það kvöld gjörsamlega toppaði þetta fyrir mér.. nasa bara troðið og maður gjörsamlega sleppti sér þar. Hérna getið þið horft á upptöku þaðan, spóla held ég fram að 5 mín. Þá komum við :)
http://youtube.com/watch?v=vWd68uzBLTE
Svo var aftur haldið til Ungverjalands til að stunda þetta blessaða nám.. en ekki fengum við að stoppa hérna lengi. Þurftum að fljúga aftur heim til að taka upp myndbandið..átti að taka það upp á fimmtudegi, mættum á miðvikudegi og auðvitað var því frestað fram á mánudag. Brunað uppí Hvalfjörð 7 að morgni, viðbjóðslegur kuldi og hýfandi rok tók á móti okkur.. við í blæjubíl að reyna að vera töff í þeim kulda.. reyndar er ég svo ótrúlega svalur að þetta var létt fyrir mig :)
Svo var farið aftur til RVK um átta leitið, niðrí loftkastala að æfa einhverjar pósur á sviðinu og svo í myndatöku... myndinn í headderinum er ein af þeim, kjjjjöööööttt!!!! :) En svona er víst bransinn, maður þarf að fara venjast þessu :)
Svo er það bara vonandi Euro í Finnlandi, vonandi að skólinn leyfir okkur að fara þangað ánþess að önnin fara í rúst.
Eigum að vera mættir þangað 2. maí held ég, æfa fram til 10. Þá er undankeppnin og svo ef við komumst uppúr þeirri vitleysu(10 lög af 28 komast áfram) þá er það úrslitakvöldið 12. maí. Allir vel stylltir á þessum tímum :)
Annars er allt gott að frétta, sól og blíða alla daga og við á fullu í ræktinni og að skokka til að vera í killer formi í euro :)
Setti inn fullt af myndum frá eurovision, sumar eru teknar með zoomi á símanum mínu (3.2mpix) :) þannig að þær gætu verið óskýrar. Bæði myndir inni á "myndir" og "myndirnar"
Hér er svo linkur inná aðalsíðuna:
http://esciceland.com/
Bestu kveðjur heim,
Selurinn
Myndband aldarinnar!!!!
Já skv. öruggum heimildum frá Mr. Bling þá verður euróvision myndbandið frumsýnt í kvöld, mánudaginn 12. mars, í Kastljósinu á RÚV.Allir að planta sér fyrir framan sjónvarpstækin með popp í annari og Black Death í hinni og njóta þeirrar rúsíbanaferðar sem Eiki And The Svenster Bling Band mun bjóða uppá.
Ótrúlegir leikhæfileikar mínir vega þungt í þessu myndbandi enda mikil reynsla frá actionary með pictionary síðan í Hörgshlíðinni.
kv, Selurinn
Allir Muna Ađ Kjósa EIRÍK HAUKS!!!! 900-2004
Já á morgun, 17 feb, mun Eiki Bleiki stíga á stokk ásamt Svenster Bling band. Það er skipað þeim:Benni Trommur
Gummi Gítar
Stebbi Rocco Gítar
Sibbi Bassi
Axel Sóló Gítar :)
Númerið sem á að hringja til að kjósa goðin er : 900-2004
Og ef allt gengur vel þá sjáumst við í Finnlandi :)
Kv, Selurinn